31.5.03

Nú eru mánaðarmót enn einu sinni . Mikið líður tíminn hratt. Í dag átti að vera lóðartiltektardagur heima hjá mér en var blásinn af vegna rigningarinnar. Í staðin fór ég í langan göngutúr - og fannst rigningin góð. Ég hef í rauninn verið mjög dugleg í - hreyfingu - upp á síðakastið, ekki veitir af eftir alla kyrrsetuna fyrir framan tölvuskjáinn í vetur. Nú er sem sagt komin tími til að verða fitt og úthaldsgóð fyrir Berlínarförina, því ég veit að ég á eftir að hreyfa mig mikið þar. Hlakka ég sérstaklega til að hjóla um og finna fyrir hlýrri gollunni, það er eitt af því sem mér finnst æðislegast. Ég hlakka nú líka til að hitta námsfélagana á staðbundnum lotunum í næstu viku og að láta kenna mér. Ég er skráð í Hugbúnaður og margmiðlun hjá Stefáni Jökulsyni og Fjarnám og kennsla hjá Láru Stefáns. Ég er smá smeik að þetta verði of mikið fyrir mig þar sem ég er með margt annað á prjónunum í sumar en það verður bar að koma í ljós. Kúrsinn hjá Láru er byrjaður og líst mér vel á hann. Svo er Lára lika svo kröftug í kennslunni.

21.5.03

Svona í lokin þegar ég fór yfir skilavefinn minn fannst mér hann ekki nógu skýr. Ég sá líka að uppsetninginn bauð ekki upp á að hann yxi frekar. Ég dreif mig því í umbætur og breytti honum án þess að breyta útlitinu neitt sérstaklega. Ég nota fléttiglugga til að fara lengra inn í vefinn. (Lærði það hjá Birni á staðbundnulotunni). Skilasíðu námskeiðsins Nám og kennsla á netinu breytti ég líka til einfalda og gera aðgengilegri. Rauninni var þetta ögrandi verkefni því að ég hafði með fikti mínu á staðbundulotunni eytt út allri vinnumöppunni minni með öllum Fireworkskjölunum fyrir viðmót vefíns og myndum.Þurfti ég því að fiksa þetta dálítið til. Þessa vikuna er ég líka í Golfkennslu - námskeiði fyrir konur undir góðri handleiðslu skólasystur okkar Önnu Díu. Hún er smellgóður kennari. Meira um það seinna.

16.5.03

Ekki fóru kostningarnar eins og ég hefði vonað og ekki er þetta glæsilegt fyrir stöðu kvenna á þingi. Hörmulega slysið í Vestmannaeyjum kostninganóttina hefu samt átt hug minn allan þessa vikuna. Sorgin er svo óbærileg. Stúlkubarnið sem keyri er bara 17 ára gömul og með 10 daga gamalt bílpróf. Stúlkan sem dó er hennar allra besta æskuvinkona.
Hvað náminu líður tel ég mig búna með mitt. Hef því haft ráðrúm til að vinna í öðrum forritum mér til gagns og gamans. Ég hef líka verið ötul að nota nýju stafrænu myndavélina mína. þvílíkur lúksus að geta sett myndirnar nánast beint af vélinni á netið. Dóttir mín í Berlín nýtur góðs og fær fréttir samstundis. T.d af útskriftarsýningu LHÍ.

Myndirnar voru komar til hennar áður en opnunin var fyrirstaðin. Fábært.

Nú í dag byrjar sumarnámskeið hjá Láru Stefánsdóttur. Ég hlakka til að vinna með henni. Nýjungin hjá mér verður að ég fer til Berlínar eftir staðbundnu lotuna og vinn þar. Sem sagt pottþétt farnám.

8.5.03

Ég er búin að taka púlsinn hjá samnemendum í kvöld með því að lesa annála. Mér finnst virkilega margir vera að gera mjög flotta og spennandi hluti svo ég tala ekki um dugnaðinn í heilsurækt og martargerð. Vorið er skemmtilegur tími ekki síst hvað framkvæmdagleði varðar. Ég hef sjálf verið að breyta og endurskipuleggja hérna heima og langar til að gera margt fleirra. En þetta er líka tími prófa og yfirferðar svo ég ætti heldur að einbeyta mér af því. Ég tel mig vera í nokkuð góðum málum í sambandi við lokaverkefnið og kennsluverkefnið svo ég hef verið að prófa mig áfram í forritinu Freehand. Ég sé að áfanginn minn í tvívíðri formfræði mun færast að miklu leiti í tölvur í framtíðinni. Tölvan er mjög ákjósanlegt verkfæri fyrir þessar pælingar. Svo er þetta líka svo skemmtilegt. Önnur kisan mín er orðin tölvnörd. Hún vill helst alltaf vera með mér við tölvuna.Ég er ekki alltaf jafn hrifin því hún fer endalaust úr hárum.

5.5.03

Þá er málingavinna helgarinnar afstaðin og allt orðið fínt og snyrtilegt. Púl vinna en þakklát því árangurinn sérst straks. Þessa stundina er ég með sjúkarpróf i töflureikninum Excel á Netinu. Ég hef lagt fyrir próf áður á þennan hátt og gengur það bara mjög vel upp. Með póstinum áðan fékk ég svar frá KHÍ um að umsókn mín um framleingingu námsins væri samþykkt, svo ég verð með næsta vetur.


Ég skelli líka mynd með af málingarliðinu.

2.5.03

Ég skráði mig á námskeið í FreeHand sem átti að byrja í byrjun mánaðarins. Námskeiðið fellur niður vegna slæmrar þátttöku. Spæling. Því er ég búin að sitja við og læra á forritið upp á eingin spítur. Ástæðan er sú að ég ætla að breyta áfanga í tvívíðri formfræði sem ég kenni í haust, þannig að nemendur vinna að hluta verkefnin sín í tölvum. Mér finnst þetta sjálfri mjög skemmtilegt og á til að gleyma stund og stað. Ég er nú reyndar að fara á annað námskeið. Golfnámskeið fyrir konur hjá Önnu Dís. Ég hlakka mjög til og held að það sé verulega holt og gott fyrir mig að vera svolítið meira utandyra og ekki óþarfi að þjálfa líkamann líka.... Kannski ég taki myndavél með.... Ég kann ekkert í golfi en til þess er nú leikurinn gerður. Að læra. Ég fer með góðri æskuvinnkonu og finnst það sérstaklega skemmtilegt.
Kennslan hjá mér er búin og prófa og yfirferðartími tekin við. Seks af sjö umsjónanemendum mínum sem sóttu um í LHÍ komust í viðtal sem er fyrsta sían. Flott útaf fyrir sig því það sóttu 250-300 um inntöku. Niðurstöður ligga fyrir á föstudaginn og spennan er í hámarki hjá okkur öllum. Þetta eru flottir og metnaðarfullir nemendur.
Á opnun stuttmyndahátíðar sá ég heimildamynd ísralelskar konu. Hún fjallar um sættir og samband hennar við hryðjuverkamann sem fékk tvöfaldan lífstíðardóm eftir áras, sem hún lifði af 1976, fléttað saman með sögu landsins. Athygglisverð heimildarmynd. En núna um helgina stendur mikið til. Við systkinin ætlum að koma móður okkar, sem er stödd á sólarströnd á óvart og mála íbúðina hennar . Hún mamma er nefnilega dálítið sniður. Hún er oft að segja okkur sögur af svona fyrirmyndabörnum sem allir eiga út um allt land. Og ekki getum við verið minni.


24.4.03

Á þriðjudaginn var fór ég í heimsókn á minn gamla vinnustað, Rimaskóla. Þar var virkilega notarlegt. Ég kenndi þar myndlist í 5 góð ár. Tölvustofan þar hefur heldur betur breyst upp á síðkastið. Þar er komin snertiskjár sem mér fannst svakaflottur og ég fór á flug í sambandi við stafrænamargmiðlun í myndlistarkennslu. Það sem mér þótti samt allra merkilegast var það sem tölukennarinn sagði. "Að töluver væru að verða úrelt fyrirbæri." Tölvuver framtíðarinnar, með tilkomu þráðlaus nets, yrðu fartölvur á vögnum sem keyrð væru á milli stofa. Fyrir myndlistarkennslu er þetta frábær framþróun og beytir möguleikum kennslunnar gífulega. Tölvan verður eitt verkfærið enn sem við höfum til að tjá okkur sjónrænt en þarf ekki að að koma í staðin fyrir hin sem fyrir eru. Frábært.
Í sambandi við lokaverkefni langar mig til að leggja fram þrjá vefi sem ég hef verið að vinna á önninni.

1. Kennsluvef fyrir Bókasafnstækna. Fjarnám fyrir fullorðna í markvissri tölvunotkun.

2. Kennsluvef fyrir nemendur í Upplýsinga og fjölmiðlafræði. Vmm 103 sem er vefhönnun, myndvinnsla og myndbandagerð.

3. Ferilsskrá. Um mig fyrir mig.

Þennan síðasta vef hef ég verið að vinna yfir páskana.

19.4.03

Það síðasta sem ég bloggaði gat ég ekki séð þó aðrir sæu það. Stundum nota ég slóðina http://ingfri/blogspot.com en á öðrum stundum verður það að vera http://ingfri/blogspot.com/index.html. Blogg er dittótt og nú eru öll bulltáknin horfin og ég sé hvað skrifað var. Nú er bara að sjá þegar ég sendi þetta pár út á vefinn. Kemur það straks eða eftir viku????

Ég er búin að sita stíft við vinnu síðustu daga og unnið í vefi um eigin feril . Vefur um mig fyrir mig. Þetta er komið áleiðis enn vantar allar myndi en sem ég er að skanna inn. Verk sem ég hef lengi verið með í bígerð en ekki gefið mér tíma í. Og svo er mikið að gera í matarboðunum. Notaleg þessi frí og flott hjá okkur kennurum.

16.4.03

Ég hef ekki bloggað í tvær vikur. Salvör var að senda mér línu og minna mig á. Þægilegt að finna að það sé fylgst með. Ég er heilmikið nýjungagjörn og fannst skemmtilegra að blogga til að byrja með þegar ég var að komast inn í þetta. Síðan þegar það er orðin vani dett ég út. Tek mig á.
Síðasta staðbundna lotan búin og ég komst að því að ég er mikið til búin með það sem ætlast er til af okkur með verkefnaskil. Því ætla ég að láta verða að því að vinna vef fyrir mig um mig yfir páskanna. Einhvað sem hefur staðið lengi til en aldrei tími til að vinna. En ég er eins og skjalbakan mín fer hægt. Ég dett niðrí hönnunar þáttinn og vil helst vera þar. Ég var nokkuð ánægð með staðbundnulotuna þó að ég var svolítið á hlaupum á milli KHÍ og Borgarholtskóla. Sérstaklega fannst mér gaman að sjá þessa nýju powerpoint möguleika og síðan læri ég ýmislegt af Bjössa í Fireworks. Dimmetering var í skólanum og mínir nemendur - umsjónanemendur að klára listnámsbrautina og margir stúdentinn með. Þau eru sjö sem sækja um í LHÍ og seks eru þegar komin í gegnum fyrstu síu þ.e.a.s þau fara í viðtal í dag og á morgun. Ég er að deyja úr spenningi með þeim því það er þvílík samkeppni að komst inn í Listaháskólann og ég er búin að vera með þeim í þessu síðastliðin þrjú ár. Í fyrradag heimsótti 15 ára frændi minn úr Vestmannaeyjum mig og var með mér eina dagstund. Mér finnst það merkileg, sérstakt en þó aðalega verulega vænt um að hann sækist enn í að vera með mér. Ég fékk lánaða upptökuvél í skólanum og við gerðum saman stuttmynd. Stuttmyndin fjallaði um hreyfingu. Síðan gróf-klipptum við hana um kvöldið. Þetta var mjög skemmtilegur dagur og einnig lærdómsríkur fyrir mig.

31.3.03

Ég er búin að klára verkefnin sem Lára og Sólveig hafa umsjón með. Þá er næst á dagskrá kennsluverkefnið sem á að klára fyrir staðbundnulotuna. Ég tek undir það sem Þorkell segir í sínu bloggi að gott væri að fá nánari upplýsingar um þetta verkefni. Ég efast einnig um kennslufræðilegt gildi þess að við flytjum kynninguna á staðbundnulotunni. Þó að það eigi að taka hana upp á myndband hef ég á tilfinningunni að þetta sé endurtekning á því sem við gerðum á staðbundni lotu hjá Sólveigu fyrir jól. Nema hugsunun sé einhver allt önnur og ég hef ekki innsýn í hana.

27.3.03

Nú slekk ég hinsvegar á öllum tölvum og skelli mér þangað sem mannlífið er með upptökuvélar. Ég þarf að undirbúa mig undir kennslu í myndbandsvinnu. Í kvöld rifja íg upp klippiforritið iMovi í Makkanum en þess á milli kenni ég 6 kennslustundi í módelteikningu. Ég verð til í slaginn á morgun. Er búin að taka saman kennsluefni og þó ég sé þokkanlegur byjandi í myndbandagerð hlakka eg til. Treysti ég á sköpunarþörf, reynslu annarra, tækiatriði og góðaskapið.
Einnig er ég búin að ganga frá danskahlutanum af Nýting í skólastarfi. hjá henni Láru. Það tók smá tíma at finna tækniorðin því sá orðaforði ekki til á mínu tíma í Danaveldi. Og ég er búin að skrá tvær lýsingar inn í rannsóknavefinn. Notaði ekki strákana því best er að halda sé við landsins lög og reglur.
Samkvæmt nýjust fréttum frá Salvöru bíða okkar en mörg verkefni svo það er eins got að dragast ekki aftur úr.
Ég er nokkuð ánægð með vinnuframlag mitt síðastliðinn sólahring. Ég dreif mig að gera vefleiðangurinn. Ég dróg hann á langin því ég var ekki búin að komast niður á nógu gott verkefni. Vefleiðangur henntar vel fyrir LIM 103 áfangi í listum og menningu en útfærslan vafðist fyrir mér og hélt að þetta yrði of umfangsmikið. Mikluferkar kennsluvefur. En hver veit nema þetta sé byrjunin. Svo er þetta með höfundarréttinn ég veit að ég er á mjög gráu svæði með að nota myndir annarra listamanna þar. Kannski alveg á svörtu. En þar sem þetta er lokal-kennsluvefur og eingöngu ein mest tvær myndir eftir hvern listamann tek ég áhættuna, þar sem myndbyrtingin þjónar kennslufræðilegum tilgangi.
Ég er nokkuð ánægð með vinnuframlag mitt síðastliðinn sólahring. Ég dreif mig í að gera posted by Ingibj� at

24.3.03

Ég gerði könnun í dag á tveimur strákum. Könnunin var gerð alveg spontant. Þeir komu inn í kennslustund hjá mér í tölvuverinu og báðu um að fá að fara í tölvu. Þurftu að afla sér upplýsinga um verkefni sem þeir voru að vinna. Það var sjálfsagt frá minni hálfu en ég spurði hvort ég mætti gera könnun á þeim í leiðinni. Ég útskýrði út á hvað þetta gengur og þeir gáfu samþykkti sitt. Eftir könnunina kom í ljós að þeir eru bara 16 ára og ég er ekki með samþykki foreldrana svo ég veit ekki hvort ég get notað þetta. Ég veit ekki einu sinni hvað þeir heita svo það verður erfitt að fá það á hreint. En það var virkilega gaman að fylgjast með þeim og það kom mér á óvart hvað þeir voru hnitmiðaðir og öruggir með sig. Svo voru þeir líka svo snöggir í öllum aðgerðum drengirnir að ég átti fullt í fangi með að skrá. Það var varla að ég sá hendurnar í fókus. Ég hafði á tilfinningunni að þeir voru mjög meðvitaðir um að ég væri að fylgjast með og að það hafði áhrif á innbyrðis samskipti þeirra. Þetta voru miklir töffara en örugglega feimnir og vildu ekki blotta sig. Þannig að þeir töluðu sáralítið saman. Mér þætti áhugavert að heyra annarra upplifun af þessu.
Lengi hefur mér þótt mikil vöntun að vera ekki með mína eigin stafrænu myndavélina. Ég hef alltaf notað ljósmyndi í þágu myndlistar. En nú svo komið að ég nenni ekki lengur að nota mína annars góðu myndavél, þar sem hún er upp á gama mátann. Svo að ég keypti mér vél um helgina. Eina þokkanlega góða. Og mikið er ég ánægð með enn nýja græju í þágu tækninna.